Virk Starfsendurhæfingarsjóður
		<description>Virk - Starfsendurhæfingarsjóður</description>
		<language>is</language>
Samstarf við lækna
    <description>VIRK Starfsendurhæfingarsjóður leggur áherslu á gott samstarf við lækna og annað fagfólk sem sinnir heilbrigðisþjónustu og
endurhæfingu.  Markvisst hefur verið unnið að því að þróa skilvirk samskipti og samvinnu við heimilislækna vegna sameiginlegra
skjólstæðinga. Nú þegar er VIRK í skipulögðu samstarfi við þrjár heilsugæslustöðvar á
höfuðborgarsvæðinu og á nokkrum stöðum á  landsbyggðinni er einnig kominn vísir að svipuðu samstarfi. Samstarfið felst í
mánaðarlegum fundum þar sem m.a. er farið yfir flókin einstaklingsmál og tilvísunum komið á framfæri. Með markvissu samstarfi aukast
líkur á að leið einstaklings í gegnum kerfið sé heildstætt ferli og starfsendurhæfing skili árangri.
Fjöldi greina og viðtala í Ársriti um starfsendurhæfingu
    <description>Atvinnuþátttaka eykur lífsgæði, er fyrirsögn í einu þeirra viðtala sem birt eru í Ársriti um starfsendurhæfingu 2012 og gefið var út í tengslum við ársfund VIRK nú á vordögum.
Í viðtalinu segir Sigrún Sigurðardóttir ráðgjafi VIRK í starfsendurhæfingu, sem starfar fyrir Rafiðnaðarsambandið og fleiri
í hlutastarfi til að byrja með. Þó að fólk geti ekki sinnt sínu gamla starfi er það ekki endilega
kljást við afleiðingar af alvarlegu slysi og var ekki fær um að fara í sitt fyrra starf. Hann fór þessa leið og fékk í
kjölfarið ráðningu."  
Kynning VIRK á atvinnulífssýningunni Skagafjörður 2012 Lífsins gæði og gleði
Dagana 28.-29. apríl var haldin atvinnulífssýning á Sauðárkróki sem bar nafnið  Skagafjörður 2012
Lífsins gæði og gleði. Sýningunni var einkum ætlað að draga fram þann fjölbreytileika sem Skagafjörður hefur upp á að
bjóða
í þjónustu, framleiðslu og menningu á glæsilegri sýningu.    
Nýr sérfræðingur hjá VIRK
    <description>Nýr sérfræðingur, Erla Konný Óskarsdóttir hefur tekið til starfa á sviði þróunar, gæða- og eftirlits hjá
VIRK.
Erla Konný er með B.A. í sálfræði frá Háskóla Íslands og M.A. í stjórnun með sérhæfingu í
upplýsingamiðlun frá University Maryland. Hún er með margra ára reynslu í kennslu, ráðgjöf og stjórnun. Síðastliðin
sjö ár hefur hún starfað við kennslu og ráðgjöf í gæða-, mannauðs-, skjala-, upplýsinga- og öryggismálum hjá
FOCAL Software & Consulting samfara stundakennslu við Háskóla Íslands.
Erla vann í tólf ár í Bandaríkjunum þar sem hún starfaði m.a. sem ráðgjafi fyrir tölvu- og ráðgjafafyrirtæki
og  verkefnastjóri við þróun á tölvuvæddu kennsluefni fyrir stjórn Bandaríkjanna. Þar hafði hún einnig umsjón
með þróun og stjórnun upplýsingavefa fyrir tóbaksvarnarráð, hélt námskeið, fyrirlestra, stýrði
alþjóðlegum fundum og tók þátt í stefnumótun.
Ávarp Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra á ársfundi VIRK - Starfsendurhæfingarsjóðs
    <description>Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra ávarpaði ársfund VIRK-Starfsendurhæfingarsjóðs fimmtudaginn 12 . apríl sl. Í erindi
sínu fjallaði hann  meðal annars um frumvarp til laga um starfsendurhæfingu sem nú liggur fyrir Alþingi og um mikilvægi þess að efla
starfsendurhæfingu og virkni einstaklinga.