Virk Starfsendurhæfingarsjóður

Trúnaðarmannafræðsla Að undanförnu hefur sérfræðingur á vegum VIRK ásamt ráðgjöfum í starfsendurhæfingu verið með fræðslu fyrir trúnaðarmenn og talsmenn

Trúnaðarmannafræðsla

Að undanförnu hefur sérfræðingur á vegum VIRK ásamt ráðgjöfum í starfsendurhæfingu verið með fræðslu fyrir trúnaðarmenn og talsmenn stéttarfélaga um hugmyndafræði VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs, framkvæmd og árangur. Fræðslan er á vegum Félagsmálaskóla Alþýðu og er markmið hennar að trúnaðarmenn öðlist þekkingu á sjóðnum, hlutverki hans og aðferðum.

Trúnaðarmenn eru hvattir til að benda einstaklingum á sínum vinnustað á aðstoð VIRK ef heilsubrestur veldur skertri vinnugetu.

Fræðslan hefur gengið vel og hafa trúnaðarmenn verið áhugasamir um efnið. Þeir eru jákvæðir í  garð sjóðsins og hefur verið lærdómsríkt fyrir sérfræðing og ráðgjafa VIRK að eiga samtöl við trúnaðarmennina sem margir hverjir  búa yfir mikilli reynslu.

Senda á Facebook

Úr veikindum í vinnu
Vinnum saman

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf