Virk Starfsendurhæfingarsjóður

Vinnudagur sérfræðinga í sérhæfðu mati Sérfræðingar sem koma að sérhæfðu mati  hjá VIRK eru nú nálægt þrjátíu talsins og eru matsteymi í Reykjavík, á

Vinnudagur sérfræðinga í sérhæfðu mati

Sérfræðingar sem koma að sérhæfðu mati  hjá VIRK eru nú nálægt þrjátíu talsins og eru matsteymi í Reykjavík, á Akureyri og á austurlandi.  Vinnudagur sérfræðinga í sérhæfðu mati var haldinn laugardaginn 29. október sl. í Háskólanum í Reykjavík. 

Á vinnudeginum var upplýsingakerfi VIRK kynnt og aðgengi sérfræðinganna að því undirbúinn, farið var yfir aðkomu ólíkra faghópa og nánari stöðlun skýrsluforms í sérhæfðu mati.  Einnig var farið yfir notkun ICF í matinu og samræmingu í notkun skýrivísa, farið yfir atvinnutengd úrræði og tengingu við matið og að lokum var kynnt aðkoma félagsráðgjafa að sérhæfðu mati en sú fagstétt hefur nýlega bæst í hóp þeirra sem að matinu koma.  Á vinnudeginum sköpuðust mikilvægar umræður sem skipta miklu máli fyrir þróun matsins og samræmingu matsaðila.  Vinnudagurinn þótti heppnast vel í alla staði. 
Senda á Facebook

Úr veikindum í vinnu
Vinnum saman

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf