Virk Starfsendurhæfingarsjóður
Markmið með fjarvistastjórnun er fyrst og fremst að fækka fjarvistum á vinnustað og stytta fjarvistatímann, auk þess að leiðbeina og
móta viðhorf
Áherslur í fjarvistastjórnun
- Markmið með fjarvistastjórnun er fyrst og fremst að fækka fjarvistum á vinnustað og stytta fjarvistatímann, auk þess að leiðbeina og
móta viðhorf stjórnenda og starfsmanna til veikindafjarvista og að vinnustaðurinn er mikilvægur fyrir í líðan og velferð einstaklinga.
- Ástæður fjarvista eru bæði fjölþættar og flóknar, bæði innan og utan vinnustaðarins og því er mikilvægt fyrir
stjórnendur að hafa viðmið og leiðbeiningar að fara eftir þegar rætt er um ástæður veikindafjarvista eða þegar aðgerða er
þörf.
- Stjórnendur gegna lykilhlutverki varðandi stjórnun og meðferð fjarvista en mikilvægt er að starfsmenn þekki til stefnu eða viðmiða
vinnustaðarins varðandi fjarvistir . Til að ná sem bestum árangri í fjarvistastjórnun er mikilvægt að hafa gott samtarf og skilning milli
stjórnenda og starfsmanna á vinnustaðnum, auk þess er mjög mikilvægt að stéttarfélög, læknar og heilbrigðiskerfið taki virkan
þátt í ferli fjarvistastjórnunar.
...