Virk Starfsendurhæfingarsjóður

Gjald í VIRK StarfsendurhæfingarsjóðGreiðsluskylda í VIRK Starfsendurhæfingarsjóð hefur verið lögfest frá og með 1. september 2011, sbr. lög 73/2011.

Innheimta

Gjald í VIRK Starfsendurhæfingarsjóð
Greiðsluskylda í VIRK Starfsendurhæfingarsjóð hefur verið lögfest frá og með 1. september 2011, sbr. lög 73/2011. Þetta þýðir að öllum launagreiðendum ber að greiða 0,13% af heildarlaunum allra starfsmanna sinna til VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs frá og með 1. september nk.
Fram að þessum tíma hefur einungis verið kveðið á um greiðsluskyldu í kjarasamningum en nú nær hún til allra launamanna samkvæmt lögum.

Um er að ræða breytingu á lögum nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða sem gerð var í júní sl. og er málsgreinin um iðgjald launagreiðenda til VIRK svohljóðandi:

Iðgjald launagreiðanda, þ.m.t. þeirra sem stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi til VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs skal vera 0,13% af iðgjaldsstofni skv. 1.mgr.3.gr. og skal reiknast í fyrsta sinn af iðgjaldsstofni septembermánaðar 2011. Iðgjaldið veitir réttindi til þjónustu VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs. Launagreiðanda skv. 1. málsl. er skylt að standa skil á iðgjaldinu til viðkomandi lífeyrissjóðs með sama hætti og gildir um lífeyrisiðgjald, sbr. 2. mgr. 7. gr. Lífeyrissjóðir ráðstafa iðgjaldinu til VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs og skal fara eftir þeim ákvæðum sem almennt gilda í  þeim innheimtusamningum sem gerðir hafa verið milli aðila.

Innheimta hjá lífeyrissjóðum
Ákveðið var í upphafi að óska eftir því að lífeyrissjóðir taki að sér að innheimta gjaldið. 

Lífeyrissjóðir sem taka á móti greiðslum í VIRK Starfsendurhæfingarsjóð

Nánari upplýsingar
Ef launagreiðendum vantar nánari upplýsingar varðandi gjald í VIRK Starfsendurhæfingarsjóð þá eru þeir hvattir til að snúa sér beint til sjóðsins.  
Umsjón með innheimtu hefur Guðbjörg Róbertsdóttir, tölvupóstfang: gudbjorg@virk.is

 

Úr veikindum í vinnu
Vinnum saman

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf