Virk Starfsendurhæfingarsjóður

  Hlutverk Starfsendurhæfingarsjóðs er að draga markvisst úr líkum á því að launafólk hverfi af vinnumarkaði vegna varanlegrar örorku, með aukinni virkni,

Hlutverk og stefna

 

Hlutverk Starfsendurhæfingarsjóðs er að draga markvisst úr líkum á því að launafólk hverfi af vinnumarkaði vegna varanlegrar örorku, með aukinni virkni, eflingu endurhæfingar og öðrum úrræðum.

Stefna Starfsendurhæfingarsjóðs er að:

  • skipuleggja ráðgjöf og þjónustu fyrir starfsmenn sem veikjast til lengri tíma eða slasast þannig að vinnugeta skerðist
  • stuðla að snemmbæru inngripi með starfsendurhæfingarúrræðum í samstarfi við sjúkrasjóði og atvinnurekendur
  • fjármagna ráðgjöf og fjölbreytt endurhæfingarúrræði sem miða að aukinni virkni starfsmanna sem búa við skerta vinnugetu til viðbótar því sem þegar er veitt af hinni almennu heilbrigðisþjónustu í landinu
  • stuðla að fjölbreytni og auknu framboði úrræða í starfsendurhæfingu
  • byggja upp og stuðla að samstarfi allra þeirra aðila sem koma að starfsendurhæfingu viðkomandi einstaklinga
  • hafa áhrif á viðhorf og athafnir í samfélaginu til að stuðla að aukinni virkni starfsmanna
  • styðja við rannsóknir og þróunarvinnu á sviði starfsendurhæfingar.

Meginverkefni Starfsendurhæfingarsjóðs eru að:

  • skipuleggja og hafa umsjón með störfum ráðgjafa sem starfa aðallega á vegum sjúkrasjóða stéttarfélaganna og munu aðstoða einstaklinga sem þurfa á endurhæfingu að halda.   Starfsendurhæfingarsjóður  greiðir kostnaðinn af störfum ráðgjafanna ásamt því að hafa umsjón og eftirlit með starfi þeirra og veita þeim faglegan stuðning.  Sérstök áhersla er lögð á snemmbært inngrip með starfsendurhæfingarúrræðum í samstarfi við sjúkrasjóði og atvinnurekendur
  • greiða kostnað af ráðgjöf ýmissa fagaðila um mótun sérstakrar einstaklingsbundinnar endurhæfingaráætlunar, s.s. lækna, sálfræðinga, iðjuþjálfa, sjúkraþjálfa, félagsráðgjafa, náms- og starfsráðgjafa o.s.frv.
  • greiða fyrir kostnað við úrræði og endurhæfingu með áherslu á að auka vinnugetuna, til viðbótar því sem þegar er veitt af hinni almennu heilbrigðisþjónustu í landinu. 

Önnur verkefni Starfsendurhæfingarsjóðs eru að:

  • stuðla að aukinni fjölbreytni og framboði úrræða í starfsendurhæfingu
  • byggja upp og stuðla að samstarfi allra þeirra aðila sem koma að starfsendurhæfingu
  • hafa áhrif á viðhorf og athafnir í samfélaginu sem stuðla að aukinni virkni einstaklinga
  • styðja við rannsóknir og þróunarvinnu á sviði starfsendurhæfingar.

Stefnur og áætlanir
Hér er að finna upplýsingar um ýmsar áætlanir og stefnur sem mótaðar hafa verið og samþykktar af stjórn Starfsendurhæfingarsjóðs.

 

Úr veikindum í vinnu
Vinnum saman

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf