Virk Starfsendurhæfingarsjóður

  Ráðgjafar í starfsendurhæfingu hjá sjúkrasjóðum stéttarfélaga VIRK skipuleggur, fjármagnar og hefur umsjón með störfum ráðgjafa í starfsendurhæfingu hjá

Ráðgjafi í starfsendurhæfingu

 

Ráðgjafar í starfsendurhæfingu hjá sjúkrasjóðum stéttarfélaga VIRK skipuleggur, fjármagnar og hefur umsjón með störfum ráðgjafa í starfsendurhæfingu hjá sjúkrasjóðum stéttarfélaga um allt land. 

  • Hlutverk ráðgjafanna er að aðstoða einstaklinga við að viðhalda og efla virkni til vinnu.  Eitt af verkefnum ráðgjafa er meðal annars að aðstoða starfsmenn og stjórnendur á vinnustöðum við að tryggja farsæla endurkomu til vinnu í kjölfar veikinda eða slyss.   Á heimasíðu sjóðsins http://www.virk.is/  eru upplýsingar um nöfn, staðsetningu, símanúmer og póstföng allra ráðgjafanna. 

  • Ráðgjafi í starfsendurhæfingu metur starfshæfni starfsmannsins, bæði út frá heilsufarslegum og félagslegum þáttum.

  • Ef starfsmaðurinn er lengi frá vinnu vegna veikinda aðstoðar ráðgjafinn hann við að vera í reglubundnu sambandi við vinnustaðinn. Hann styður einnig starfsmenn í gerð áætlunar um að snúa aftur til starfa, í samráði við atvinnurekanda.

  • Hann aðstoðar við gerð áætlunar um aukna virkni, heilsueflingu og starfsendurhæfingu. Ráðgjafinn fylgir þeirri áætlun eftir, í samráði við starfsmannin.

  • Ráðgjafinn veit hvernig starfsmaðurinn, atvinnurekandinn og ýmsir fagaðilar geta unnið saman að því að auka starfshæfni starfsmannsins.

Úr veikindum í vinnu
Vinnum saman

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf