Virk Starfsendurhæfingarsjóður

Heilsustöðin - sálfræði- og ráðgjafaþjónustaHoltasmári 1, 6 hæð, 201 Kópavogur, sími:534-8090, netfang:heilsustodin@heilsustodin.is, heimasíða:

Ráðgjöf og námskeið

Heilsustöðin - sálfræði- og ráðgjafaþjónusta
Holtasmári 1, 6 hæð, 201 Kópavogur, sími:534-8090, netfang:heilsustodin@heilsustodin.is, heimasíða: http://www.heilsustodin.is/
Svefnleysi - Námskeið:
Hugræn atferlismeðferð við svefnleysi er árangursríkasta meðferðin sem völ er á, mun árangursríkari en svefnlyf. Fjöldi rannsókna hefur staðfest þetta. Hópmeðferð getur borið jafn góðan árangur og einstaklingsmeðferð og meðal kosta þess að sækja meðferð í hópi er að kostnaður er aðeins um helmingur kostnaðar við einstaklingsmeðferð.
Heilsustöðin býður upp á 5 vikna námskeið sem byggir á aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar við svefnleysi, þar sem 10-15 manns hittast undir leiðsögn sálfræðings vikulega, eina og hálfa klukkustund í senn. Hugræn atferlismeðferð við svefnleysi í hópi hentar flestrum fullorðnum sem þjást af svefnleysi. Þrátt fyrir að um hópmeðferð sé að ræða fær þátttakendur ráðleggingar sem miða að þörfum og aðstæðum hvers og eins.
Áður en hægt er að skrá sig í hópmeðferð þarf að fara fram mat á því hvort hópmeðferð er hentugt úrræði fyrir þig. Þú hefur val um tvær leiðir:
Mat á netinu: Tímabundið býður Heilsustöðin upp á frítt mat í gegnum vefinn. Þú svarar spurningum á vefnum og sendir til okkar. Heilbrigðisstarfsmaður yfirfer svör þín og hefur samband við þig með upplýsingar um hvort hópmeðferð er hentugt úrræði eða frekari ráðleggingar.
 
Matsviðtal á stofu: Þótt mat á netinu sé í flestum tilfellum nóg til þess að komast að því hvort hópmeðferð við svefnleysi henti, getur í vissum tilfellum verið nauðsynlegt að meta vandann nánar í matsviðtali á stofu. Í slíku viðtali eru orsakir svefnleysis greindar með nákvæmari hætti sem getur verið nauðsynlegt í flóknari tilfellum. Gjald fyrir matsviðtal er samkvæmt gjaldskrá Heilsustöðvarinnar.

Upplýsingar um næstu námskeið má finna inn á http://www.heilsustodin.is/
Vegna mikillar eftirspurnar og takmarkaðs fjölda á námskeiði er ráðlagt að tryggja sér sæti sem fyrst.

Fræðslusetrið Starfsmennt
Grettisgötu 89, 105 Reykjavík, sími 525-8395, netfang smennt@smennt.is, heimasíða www.smennt.is/

Fræðslusetrið Starfsmennt býður ríkisstarfsmönnum upp á starfstengda símenntun og veitir stofnunum heildstæða þjónustu á sviði starfsþróunar. Þjónusta Starfsmenntar er sérsniðin að þörfum þátttakenda um allt land í krafti faglegs samstarfsnets og öflugs vefkerfis. Markmið setursins eru að koma til móts við breytingar á starfsumhverfi og störfum starfsfólks með fræðslu og ráðgjöf.  Setrið býður því  upp á fjölda námskeiða sem opin eru öllum og ætlað að efla almenna færni í leik og starfi.  Allar nánari upplýsingar má fá á http://www.smennt.is/ og í síma 525 8395.

Starfsnám stuðningsfulltrúa- grunn- og framhaldsnám
Hér er um umfangsmikið samfellt starfsnám að ræða og telur grunnnámið alls 160 stundir og framhaldsnámið 80 stundir. Kennt er á morgnana aðra hverja viku og hentar námið starfsmönnum sem vinna með fötluðum, öldruðum eða sjúkum, eða hyggja á störf á þessum vettvangi.

Að tjá sig án kvíða (16 stundir)
Þetta námskeið er ætlað þeim sem vilja ná tökum á frammistöðukvíða eða auka öryggi sitt í flutningi máls.

Framrás 1 – Ég og starfið (36 stundir)
Hér er fjallað um mikilvægi heilbrigðs sjálfstrausts sem grunn að góðum samskiptum og vellíðan á vinnustað. Reyndir sálfræðingar fjalla um gildi sjálfsmyndar og  sjálfsþekkingar.

Nám í mannauðsstjórnun fyrir millistjórnendur hjá ríkinu (32 stundir)
Megintilgangur námsins er að gera þátttakendur hæfari til að vinna með og virkja mannauðinn á hverjum vinnustað út frá sérstöðu starfsumhverfis ríkisstofnana. Áhersla er lögð á skipulagningu og stjórnun starfsmannamála og að gefa yfirsýn yfir fræðasviðið sem og hagnýt verkfæri.

Nám fyrir starfsmenn í stjórnunareiningum (54 stundir)
Markmið með náminu er að þátttakendur læri hagnýtar aðferðir til að takast á við breiðara starfssvið og flóknari verkefni sem aðstoðarmenn stjórnenda. Miklu skiptir að stjórnendur geti falið starfsfólki að fullvinna verkefni og tryggja góða yfirsýn. Hér er stefnt að því að treysta grunn faglegra og úrræðagóðra starfsmanna með því að veita þeim innsýn í stjórnunarfræði og treysta skipulags- og samstarfshæfni. Námið nýtist einnig þeim sem undirbúa sig fyrir störf á nýjum vettvangi.

Rekspölur 1 (60 stundir)
Hér er lögð áhersla á persónulega hæfni, almenna þekkingu og samspil einkalífs og starfs ásamt umfjöllun um samfélagslega innviði. Þetta nám hefur lagt grunn að frekara námi og þátttöku í félagsstörfum.

Verkefnastjórnun (24 stundir)
Hér er kynnt hugmyndafræði verkefnastjórnunar, helstu aðferðir, tæki og tól. Einnig er fjallað um hvernig verkefnastjóri getur virkjað samstarfsfólk sitt til athafna og gildi góðs upplýsingaflæðis. Hér læra þátttakendur að halda utan um þróun hugmyndar frá upphafi til enda án þess að tapa yfirsýn.

Talsmaður lærdóms (76 stundir)
Þetta námskeið er ætlað þeim sem vilja greiða leið lærdóms og breytinga á vinnustað eða þróa hæfni sína á því sviði.  Þátttakendur þurfa að þekkja til mikilvægi símenntunar og hafa sýnt leiðtogafærni við innleiðingu umbóta. Talsmaðurinn fær þjálfun í að greina góðar hugmyndir og koma þeim á framfæri. Þá þarf hann eða hún a  búa yfir góðum samskiptahæfileikum, vera lausnamiðaður í hugsun og hafa áhuga á velferð samferðamanna sinna.

 

Nýsköpunarmiðstöð Íslands
http://www.nmi.is/
Miðstöðin heyrir undir Iðnaðarráðuneytið og starfar eftir lögum um opinberan stuðning við tæknirannsóknir, nýsköpun og atvinnuþróun. Nýsköpunarmiðstöð Íslands leggur mikla áherslu á að vera í sterkum tengslum við bæði atvinnulífið og háskólasamfélagið til að ná sem mestum árangri í rannsóknum og þróun sem bætt geta íslenskt samfélag. Hlutverk Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands er að hvetja til nýsköpunar og efla framgang nýrra hugmynda í íslensku atvinnulífi. Nýsköpun er forsenda fyrir fjölbreytni íslensks atvinnulífs og undirstaða sterkrar samkeppnisstöðu þess. Námskeið í boði:

Verkefnastjórnun (10 klst)
Á námskeiðinu er farið í grundvallaratriði verkefnastjórnunar þar sem lögð er áhersla á hagnýtar aðferðir við stjórnun verkefna. Markmiðið er að þátttakendur öðlist kunnáttu í gerð framkvæmdaráætlana, kunnáttu í að meta óvissuþætti verkefna ásamt kunnáttu í þverfaglegu samstarfi.

Stofnun og rekstur smáfyrirtækja (35 klst)
Á námskeiðinu er farið í grundvallaratriði er varða stofnun og rekstur smáfyrirtækja. Fjallað er um sölu-og markaðsmál, fjárhagsáætlanir, form fyrirtækja og skattamál. Áhersla er lögð á gerð viðskiptaáætlana.

Vinnumálastofnun
http://www.vinnumalastofnun.is/
Ráðgjafasvið VMST býður náms-og starfsráðgjöf fyrir einstaklinga og hópa.

Námskeið í gerð ferilskrár/kynningarbréfs (2 klst)
Farið í grunnatriði við gerð ferliskrár/kynningarbréfs. Fjallað verður um helstu aðferðir í atvinnuleit.

Áhugasviðsgreining fyrir einstaklinga og hópa
Markmið er að greina tengsl áhugasviðs og starfsánægju. Að velja starf m.t.t. áhugasviðs eykur líkur á ánægju og farsæld í starfi.

Sjáfsstyrkingarnámskeið-Stattu með þér (3 klst)
Atvinnumissir getur ógnað verulega sjálfsmynd og sjálfstrausti okkar, þetta er sameiginleg reynsla þeirra sem fyrir því verða að missa atvinnu. Á námskeiðinu verður fjallað um þessa ógn og hvernig við getum tekist á við hana á uppbyggilegan hátt.

Breytingar-tækifæri/starfsleitarnámskeið (6 klst)
Markmið námskeiðinsin er að vetia þátttakendum tækifæri til sjálfsskoðunnar og mats á þeim þáttum sem liggja til grundvallar farsælu starfsvali. Auk þess er farið yfir hagnýt atriði sem gagnast geta í atvinnuleitinni.

Starfsleitarnámskeið fyrir útlendinga (3 klst)
Markmið að gefa þátttakendum aukið sjálfstraust í atvinnuleit , aukna þekkingu á vinnumarkaðnum og kenna þeim leiðir til að koma sér á framfæri.

Vinnuklúbbur-aðstoð og aðstaða til atvinnuleitar (24 klst)
Viltu hafa aðgang að ráðgjöf og aðstöðu til atvinnuleitar? Kynntu þér málið hjá ráðgjöfum

Námskeið og ráðgjöf um fjármál heimilanna (4 klst)
Á námskeiðinu ráðgjöf um fjármál heimilanna verður fjallað um hvernig best verður tekist á við breytta fjárhagsstöðu. Ráðgjafi frá Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna sér um námskeiðið.

Námskeið hjá Kvíðamerðferðarstöðinni

Námskeið í kvíðastjórnun (16 klst)
Markmið námskeiðsins er að kenna fólki leiðir til þess að takast á við kvíða og vanlíðan, auka sjálfstraust, bæta samskiptafærni og leysa úr vandamálum. Stuðst verður við aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar.

Námskeið hjá Mími- símenntun ehf
http://www.mimir.is/

Sjálfsefling og samskipti (20 klst)
Markmið er að vinna gegn niðurbrjótanti áhrifum atvinnuleysis með því að efla sjálfstraust og hæfni í mannlegum samskiptum.

Starfsleitarnámskeið-aftur til starfs (70 klst)
Markmið námskeiðsins er að styðja þátttakendur í starfsleit. Lögð er áhersla á að eintaklingur beri kennsl á eigin færni og styrkleika, auki færni í ákvarðanatöku og markmiðasetningu. Þátttakendur útbúa færnimöppu sem hefur reynst góður undirbúningur fyrir starfsumsókn og atvinnuviðtal.

Íslenska fyrir útlendinga (20 klst)
Unnið eftir nýrri námsskrá um íslensku fyrir útlendinga.

Námskeið hjá Nýja tölvu-og viðskiptaskólanum

Tölvubókhald-Navision Financials (60 klst)
Grunnuppbygging kerfisins, fjárhags- og launabókhald

Vefsíðugerð (60 klst)
Markmið er að þátttakendur geti að loknu námskeiði hannað og viðhaldið vefsíðum. Kennt er á Photashop og Frontpage.

ECDL (TÖK) tölvunám (66 klst)
Farið er yfir Windows stýrikerfið og skráarmeðhöndlun. Þá er kennd Word ritvinnsla, Excel töflureiknir, notkun Internetsins og tölvupóstur. Kennsla og námsgögn miða að því að gera nemendum kleift að taka alþjóðlegt ECDL próf og fá þeir sem ljúka prófi alþjóðlegt skírteini.

Námskeið hjá Tölvuskólanum Þekkingu

Tölvunámskeið fyrir byrjendur (60 klst)
Námskeið ætlað þeim sem hafa enga tölvukunnáttu. Kennt er á eftirtalin forrit: Windows tölvugrunn, Word grunn, Excel kynning, Internetið og tölvupóstur

Tölvunámskeið fyrir lengra komna (60 klst)
Markmið er að þátttakendur öðlist hagnýta þekkingu í tölvunotkun í starfi og öðlist öryggi og færni í notkun helstu skrifstofuforritanna, Word, Excel og Outlook

Tölvunám fyrir miðaldra og eldra fólk (60 klst)
Markmið að þátttakendur fái innsýn í notagildi PC tölvunnar, öðlist góða undirstöðu í meðferð og notkun tölvu í daglega lífinu og undirbúi þátttakendur fyrir frekara nám.

Önnur námskeið

Námskeið og aðstoð við lesblinda
Nánari upplýsingar hjá ráðgjöfum Vinnumálastofnunar.

Íslenska fyrir útlendinga
Unnið eftir nýrri námsskrá um íslensku fyrir útlendinga. Nánari upplýsingar hjá r´ðagjöfum VMST.

Vinnuvélanámskeið- Öku og vinnuvélaskóli (80 klst)
Vinnuvélanámskeið gefur rétt til rófs á allar gerðir og stærðir vinnuvéla. Námskeiðið er samkvæmt reglugerð Vinnueftirlits ríkisins, og forsenda þess að geta tkeið verklegt próf á vinnuvélar. Verklegi þátturinn er ekki innifalinn í námskeiðinu.

Sterkari staða-Efling til starfs fyrir 50 ára og eldri (90 klst)
Námskeiðið er haldið í samstarfi við Miðstöð símenntunar í Hafnarfirði og er makrmi þess að styrkja þátttakendur og skerpa sýn þeirra á eigin færni og hæfileika. Námsþættir eru m.a. almennt tölvu- og íslenskunám, sjálfsefling, samkipti og heilsuefling. Þátttakendur vinna færnimöppu.

Vinnuvernd ehf

Brautarholti 28 105 Reykjavík sími 578-0800 http://www.vinnuvernd.is/   vinnuvernd@vinnuvernd.is

,,Heilbrigðis– og lífsstílsráðgjöf er ný þjónusta sem Vinnuvernd býður upp á. Um er að ræða einstaklingsráðgjöf fyrir þá sem óska eftir persónulegum stuðningi við að efla eigin heilsu. Ráðgjöfin er sniðin að hverjum og einum, eftir því hvar viðkomandi stendur með tilliti til heilsu og lífsstíls. Í samvinnu við ráðgjafa Vinnuverndar eru raunhæf markmið sett og fundnar mögulegar lausnir til að ná þeim. Einnig er í boði eftirfylgd ef óskað er eftir því.
Ráðgjafar Vinnuverndar eru allir háskólamenntaðir og með reynslu af heilbrigðis- og lífsstílsráðgjöf innan heilbrigðiskerfisins sem og á hinum frjálsa markaði. Fullur trúnaður er milli ráðgjafa Vinnuverndar og þeirra sem til þeirra leita og eru engar viðkvæmar persónuuplýsingar skráðar nema með samþykki viðkomandi.”


Úr veikindum í vinnu
Vinnum saman

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf