Flýtilyklar
Starfsendurhæfingarúrræði
Hringsjá náms– og starfsendurhæfing
Hátúni 10d, 105 Reykjavík Símar: 562 2840 / 552 9380 Fax: 562 2843
Tölvupóstur: rlinda@hringsja.is Heimasíða: http://www.hringsja.is/
Hringsjá er starfrækt af Öryrkjabandalaginu samkvæmt þjónustusamningum við félagsmálaráðuneytið og TR. Hún er ætluð einstaklingum eldri en 18 ára, sem vegna sjúkdóma, slysa eða annarra áfalla þurfa að endurmeta og styrkja stöðu sína. Hringsjá er náms- og starfsendurhæfing fyrir fólk sem vill komast aftur út á vinnumarkaðinn eftir hlé vegna sjúkdóma, slysa eða annarra áfalla. Fólk fær kennslu, þjálfun og ráðgjöf sem miðar að því að það verði fært um að vinna störf við hæfi á almennum vinnumarkaði eða takast á við frekara nám. Jafnframt fer fram mat á stöðu einstaklingsins og hann lærir að þekkja sjálfan sig betur, óskir sínar, hæfileika, getu og takmarkanir. Hver einstaklingur er að jafnaði í starfsþjálfun í eitt til tvö ár. Almenn þekking og færni er endurnýjuð og aukin eftir þörfum, en einnig er veitt sérhæfing sem tekur mið af skrifstofu- og þjónustustörfum, meðal annars með kennslu í tölvunotkun og bókhaldi. Stundaskrá er fjórar til sex kennslustundir daglega. Einnig eru einstaklingsviðtöl hjá náms- og starfsráðgjafa og einstaklingviðtöl og umræðutímar hjá sálfræðingi. Auk þess er boðið upp á skemmri námskeið, tölvu- og bókhaldsnámskeið og sjálfstyrkingu, atvinnuleit og gerð umsókna. Kennt er í litlum hópum og getur hver unnið á sínum hraða. Nemendum námskeiða er boðið upp á náms- og starfsráðgjöf.
Atvinnuleg endurhæfing á Reykjalundi
Reykjalundur endurhæfing SÍBS | 270 Mosfellsbæ Sími 585 2000 | Fax 585 2001
Heimasíða:http://www.reykjalundur.is/Endurhaefing/Atvinnulegendurhaefing/
Höfuðmarkmið atvinnulegrar endurhæfingar á Reykjalundi er að hjálpa fólki út á vinnumarkaðinn eftir veikindi og slys. Starfsemin er rekin á dagdeildarformi. Möguleiki er á dvöl á sjúkrahóteli fyrir þá sem eiga langt til síns heima. Andleg og líkamleg færni er metin og endurhæfing skipulögð út frá því. Unnið er bæði einstaklingsbundið og í hópum þar sem áherslan er á fræðslu og kennslu. Lögð er áhersla er á að auka vinnuþol með styrktar- og úthaldsþjálfun, bættri líkamsvitund og leiðbeiningum um réttar vinnustellingar. Veittur er stuðningur við atvinnuumsóknir og athugun á vinnumarkaði. Gott samstarf við atvinnulífið, mennta- og fræðslustofnanir er mikilvæg undirstaða starfseminnar. Meðaldvalartími á Reykjalundi er um það bil tveir mánuðir. Eftirfylgd er veitt í nokkra mánuði eftir útskrift, til að aðstoða við fyrstu skrefin í námi eða vinnu.
Janus endurhæfing
Vörðuskóli v/ Egilsgötu, 101 Reykjavík Sími 514 9175 Heimasíða http://www.janus.is/
Markmiðið er að aðstoða þátttakandann við að komast aftur út í atvinnulífið og/eða vinna gegn því að hann
hverfi frá vinnumarkaðnum eða úr skóla. Starfsemin er fyrir einstaklinga sem vegna heilsubrests eru við það að hverfa frá eða hafa
þurft að hverfa frá vinnumarkaðnum eða úr námi og vilja komast aftur út í atvinnulífið. Faglegu starfi er stjórnað af
heilbrigðisstarfsfólki. Hjá Janusi endurhæfingu starfa rúmlega 20 starfsmenn, iðjuþjálfar, sjúkraþjálfarar,
félagsráðgjafar, sérfræðilæknar, sálfræðingar ásamt fleiri sérfræðingum eftir þörfum. Kennarar
Tækniskólans- skóla atvinnulífsins koma að þeim hluta sem tengist kennslu. Starfsemin er fjölbreytt og skiptist í nokkrar meginleiðir:
Endurhæfingamat-Rauð leið. Teymi Janusar endurhæfingar metur hvaða endurhæfing henti einstaklingum og gerir síðan tillögu um
úrræði hvort sem er á vegum Janusar endurhæfingar eða annarra endurhæfingarstaða. Stuðningur eftir endurhæfingarmat býðst þeim
þátttakendum sem bíða eftir að komast í úrræði sem hentar.
Atvinnuendurhæfing með eða án skóla-Gul leið. Viðamikil, einstaklingsmiðuð endurhæfing sem getur gefið kost á menntun um leið
og endurhæfing er stunduð.
Eftirfylgd-Græn leið. Einstaklingsmiðuð endurhæfing, oft að undangenginni Gulri leið og ekki eins viða mikil.
Snemmtæk endurhæfing. Viðamikil og einstaklingsmiðuð þjónusta þar sem möguleiki er á að grípa fljótt inn í
sjúkdómsferli. Ekki er nauðsynlegt að sjúkdómsgreining liggi fyrir.
Gengið er út frá því að þátttakandinn sé sérfræðingur í sjálfum sér og viti langoftast hvað honum
hentar best en þurfi stuðning og ráðgjöf til að ná markmiðum sínum. Sameinaðir eru kraftar ýmissa fagaðila og stofnana í
þjóðfélag¬inu t.d. innan heilbrigðis-, félags-, banka- og menntakerfisins til þess að auðvelda þátttakandanum að ná
því markmiði sínu að komast á vinnumarkaðinn. Endurhæfingin er þátttakendum að kostnaðarausu og skerðir ekki
lífeyrisgreiðslur. Þjónustusamningur er gerður fyrir hvern þátttakanda. Janus endurhæfing gerir þjónustusamninga við Tryggingastofnun
ríkisins, Velferðarsvið Reykjavíkur, lífeyris- og sjúkrasjóði allt eftir því sem við á í hverju tilviki fyrir sig. Ef
sótt er um í gegnum Tryggingastofnun ríkisins á að senda umsókn til: Læknisfræðileg ráðgjöf, Tryggingastofnun ríkisins,
Laugavegi 144, 150 Reykjavík. Umsóknin þarf að koma frá lækni og á henni þarf að koma fram að sérstaklega sé óskað
eftir endurhæfingu hjá Janusi endurhæfingu ehf. Ef sótt er um í gegnum lífeyrissjóði, sjúkrasjóði eða Velferðarsvið er
best að hafa samband við eigin lífeyris- eða sjúkrasjóð eða viðkomandi þjónustumiðstöð og spyrjast fyrir um réttindi
sín og möguleika.
HVERT- Samstarfs- og rannsóknarverkefni
Barónsstíg 47 Heimasíða http://www.hvert.is/
HVERT er 3ja ára samstarfs- og rannsóknarverkefni Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins auk Salastöðvar, Vinnumálastofnunar,
Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og Tryggingastofnunar. Markmið verkefnisins er að aðstoða fólk við að komast sem fyrst í vinnu og sporna gegn
ótímabærri örorku. HVERT er ætlað þeim einstaklingum sem hafa horfið tímabundið út af vinnumarkaðnum eða úr námi
sökum veikinda eða slysa og hafa áhuga á að leita aftur inn á vinnumarkaðinum. Þeir þurfa einnig að tilheyra heilsugæslustöð sem
tekur þátt í verkefninu. Þátttaka í HVERT er einstaklingsmiðuð. Fyrir utan þá vinnu sem einstaklingurinn vinnur með
starfsfólki og fulltrúum HVERT, getur þátttakandinn á sama tíma tekið þátt í hinum ýmsu
endurhæfingarúrræðum sem kunna að standa til boða í nærumhverfi. Heildræn eftirfylgd er í höndum verkefnisstjóra HVERT. Hér
hefst ferlið hjá heilsugæslulækninum og einstaklingurinn útskrifast aftur til hans. Ef erfiðleikar koma síðar upp hefur einstaklingur aðgang aftur inn
í HVERT. Samstarfsaðilar HVERT eru:
• Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins: Heilsugæslan í Garðabæ, Heilsugæslan í Glæsibæ, Heilsugæslan
í Efra Breiðholti.
• Heilsugæslan Salahverfi/Salastöð.
• Vinnumálastofnun: Vinnumálastofnunin við Engjateig.
• Velferðasvið Reykjavíkurborgar: Þjónustumiðstöð Breiðholts, Þjónustumiðstöð Laugardals- og Háaleitis.
• Tryggingastofnun ríkisins.
Klúbburinn Geysir
Skipholti 29, 105 Reykjavík Sími 551 5166 Heimasíða http://www.kgeysir.is/
Klúbburinn Geysir er fyrir fólk sem á eða átt hefur við geðræn veikindi að stríða. Klúbburinn starfar eftir
hugmyndafræði Fountain House, sem byggir á markvissri uppbyggingu á hæfileikum og getu einstaklingsins. Klúbburinn er fyrir einstaklinga sem eiga eða hafa
átt við geðræn veikindi að stríða til að ná fótfestu í lífi og starfi. Í hugmyndafræði
klúbbhúsahreyfingarinnar er lögð áhersla á jákvæðni og horft á styrkleika hvers og eins, og m.a. byggt á þeirri vissu að
bati vegna geðrænna veikinda feli í sér þátttöku í mikilvægu samfélagi.
Félagar starfa í klúbbnum í sjálfboðavinnu samkvæmt skipulögðum vinnudegi í þremur deildum; skrifstofu- eldhús- og
viðhaldsdeild frá kl. 09.00 til 16.00. Klúbbfélagar og starfsfólk bera sameiginlega ábyrgð á rekstrinum og ákveða í sameiningu
hvaða störf þarf að inna af hendi á hverjum degi á deildarfundum. Utan skipulagðs vinnudags er einnig haldið uppi fjölbreyttu félagsstarfi.
Klúbburinn er vettvangur starfsleitar fyrir félaga sína og vegur þar þyngst ráðning til reynslu í hlutastörf, 15 til 20 tíma í
viku í sex til níu mánuði. Klúbburinn hefur nú yfir fimm slíkum störfum að ráða.
Geðheilsa-eftirfylgd og Hugarafl.
Borgartún 22, Reykjavík Símar: 4141550 og 8212183 http://www.hugarafl.is/
Tilgangur þjónustunnar er að bjóða fólki með geðræn vandamál og aðstandendum þeirra eftirfylgd og ráðgjöf.
Þjónustan er staðsett innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðis og einnig ætluð til að efla aðstoð og valmöguleika innan
heilsugæslunnar á geðsviði. Einstaklingar geta leitað til okkar á eigin forsendum eða með tilvísun.
Í hreyfanlegu teymi fagaðila eru tveir iðjuþjálfar og starfsmaður með BA í sálfræði. Leitast er við að grípa sem fyrst inn
í ferli sem leitt getur af sér óvirkni og færniskerðingu. Stuðlað er að forvörnum og fækkun sjúkrahúsinnlagna. Markmiðið er
að efla virkni og þátttöku einstaklingsins í samfélaginu, efla og viðhalda færni og fyrirbyggja félagslega einangrun. Lögð er
áhersla á að skjólstæðingar séu virkir í bataferlinu og að þjónustan sé mótuð út frá
þörfum og reynslu skjólstæðinga og aðstandenda þeirra. Teymið leggur einnig áherslu á samstarf við þá aðila sem koma
að málefnum fólks með geðræn vandamál.
Starf Geðheilsu-eftirfylgd skiptist í þrjá þætti, einstaklingseftirfylgd, tengslanet með aðstandendum og hópastarf þ.e. Hugarafl og
aðstandendahópur. Eftirfylgdin gefur m.a. svigrúm til að styðja einstaklinga og fjölskyldur á heimavelli og út í samfélagið.
Tengslanet byggist á því að virkja fjölskyldu, vini og / eða aðra sem að einstaklingnum standa. Aðstandendur eru studdir við að átta sig
á hlutverki sínu og þannig tekið tillit til allra aðila í tengslanetinu, þ.e. fjölskyldunnar og notandans. Haldnir eru fundir, farið í
vitjanir og unnið að skipulagi tengslanets. Einnig fer fram fræðsla og ráðgjöf.
Í Hugarafli vinnur hópur notenda að sjálfseflingu og styrkist í bataferli sínu í náinni samvinnu við fagfólkið á
jafningjagrunni. Markmið Hugarafls eru að skapa hlutverk, efla notendaáhrif, vinna gegn fordómum með sýnileika, vinna að verðmætasköpun út
frá reynslu fólks með ge ðræn vandamál og atvinnusköpun með því að þróa þjónustu út frá reynslu
notenda. Í aðstandendahópnum deila aðstandendur mikilvægri reynslu sinni og eru studdir í hlutverki sínu og bjargráðum.
Allt starf í Geðheilsu-eftirfylgd byggir á valdeflingu, batamódelinu og vinnu í nærumhverfi sem hefur gefið góða raun í starfinu
öllu.
Hlutverkasetur Laugavegi Borgartúni 1 (inngangur sjávarmegin), 105 Reykjavík Sími 517 3471 / 695 9285 Heimasíða http:www.hlutverkasetur.is/
Hlutverkasetur býður upp á atvinnulega endurhæfingu fyrir einstaklinga sem misst hafa hlutverk af geðrænum orsökum Starfsemin nýtist einstaklingum í bata sem vilja breyta lífsmynstri sínu og óska eftir stuðningi og hvatningu til að auka lífsgæði og/eða þátttöku á vinnumarkaði. Í Hlutverkasetri starfa einstaklingar með reynslu af geðröskunum ásamt fagfólki með ólíkan bakgrunn, þ.e. iðjuþjálfar, kennarar og margmiðlunarfræðingur. Sérstaða Hlutverkaseturs er að notendaþekking er metin til jafns á við fagþekkingu. Þátttakendur í endurhæfingu hafa áhrif á þróun og uppbyggingu fyrirtækisins. Starfsmenn eru fyrirmyndir á sama tíma og þeir styðja við þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í endurhæfingarferlinu. Aðalmarkmið eru að skapa atvinnutækifæri og hlutverk og að efla þjónustu við geðsjúka sem er byggð á reynslu þeirra. Einnig er boðið upp á virkni fyrir atvinnulausa, sjá nánar á heimasíðu.
Ljósið
Langholtsvegi 43 104 Reykjavík Sími 561-3770 Heimasíða http://www.ljosid.is/
Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein / blóðsjúkdóma og aðstandendur þeirra. Markmið Ljóssins er að efla lífsgæðin með því að styrkja andlegan, félagslegan og líkamlegan þrótt og draga þannig úr hliðarverkunum sem sjúkdómurinn getur haft í för með sér. Þátttakendur í Ljósinu koma að eigin frumkvæði og áhuga og raða saman dagskrá sem hentar hverju sinni. Í Ljósinu er mikið unnið með lífsgæðin og lífsgleðina og lítið er talað um sjúkdóma og veikindi. Starfsemi Ljóssins er rekin alla virka daga frá kl. 8:30 til 16:00, auk þess sem sérskipulögð námskeið eru á kvöldin og laugardögum.
Múlalundur Vinnustofa SÍBS
Reykjalundi, 270 Mosfellsbæ sími 562 8500 Heimasíða http://www.mulalundur.is/
Múlalundur er stærsta og elsta öryrkjavinnustofa landsins þar sem öryrkjar njóta endurhæfingar ásamt því að framleiða og selja mest allra af bréfabindum og lausblaðabókum. Á Múlalundi á fólk með skerta starfsorku þess kost að vinna létt störf við hagnýtan iðnað þar sem vinnutími getur verið sveigjanlegur. Reynt er að hafa störfin frekar fjölbreytt, aðgengileg, ánægjuleg og þannig að starfsfólkið fái að njóta sín. Reynt er að byggja upp raunhæfara sjálfsmat og aukið sjálfstraust. Markmiðið er að útvega sem flestum vinnu sem fá ekki vinnu á hinum almenna vinnumarkaði og koma þeim aftur út á vinnumarkaðinn. Lögð er áhersla á að hafa vinnuna sem líkasta því sem er á vinnumarkaðnum þ.e.a.s. mæta á réttum tíma, vinna sinn vinnudag og hafa gaman af því að mæta til vinnu.
Fjölsmiðjan
Kópavogsbraut 5 200 Kópavogur Sími 544 4080 Heimasíða http://www.fjolsmidjan.is/
Fjölsmiðjan var formlega stofnuð 15. mars árið 2001. Stofnendur eru félagsmálaráðuneytið/Vinnumálastofnun, Rauði kross Íslands, Reykjavíkurborg, Hafnarfjarðarbær, Kópavogsbær, Seltjarnarnesbær, Mosfellsbær, Garðabær og Bessastaðahreppur. Menntamálaráðuneytið hefur einnig stuðlað að stofnun Fjölsmiðjunnar og á fulltrúa í stjórn hennar. Fjölsmiðjan er sjálfseignarstofnun og starfrækir verkþjálfunar- og framleiðslusetur. Hún er félagslegt, menntunar- og vinnumarkaðsúrræði fyrir ungt fólk á aldrinum 16-24 ára sem hætt hefur námi og ekki fótað sig á vinnumarkaði. Markmið starfseminnar að þroska persónuleika einstaklinganna og búa í haginn fyrir þá til aukins skólanáms eða þátttöku á hinum almenna vinnumarkaði. Starfsemin skiptist upp í nokkrar deildir s.s. trésmíðadeild, hússtjórnar- og matreiðsludeild, garðyrkjudeild, bílaþvottadeild og tölvu- og prentdeild. Framleiðsla og þjónusta Fjölsmiðjunnar er seld á markaði og eiga tekjurnar að standa undir hluta af þeim kostnaði sem hlýst af rekstri hennar. Þátttakendur fá greidd laun á meðan þeir vinna í Fjölsmiðjunni eða halda þeim bótum sem þau eru á þ.e. félagslegri aðstoð eða atvinnuleysisbótum. Þeim ungmennum á aldrinum 16-18 ára og ekki njóta ofangreindra bóta, tryggir Rauði kross Íslands sömu laun þannig að allir þátttakendur verði á sömu launum sem miðast við atvinnuleysisbætur á hverjum tíma. Mikil eftirspurn er eftir vinnu í Fjölsmiðjunni og biðlistinn er langur, en hámarksfjöldi nema sem getur verið við störf hverju sinni er um 50. Á árinu 2003 voru 85 nemar við störf.
Fjölmennt
S.511 1300 Borgartúni 22 104 Reykjavík Heimasíða http://www.fjolmennt.is/
Geðhjálp og Fjölmennt eiga í samstarfi um menntun og starfsendurhæfingu fyrir fólk með geðraskanir og heilaskaða.
Fjölmennt er miðstöð símenntunar sem þjónar fötluðu fólki 20 ára og eldri. Fjölmennt býður fjölþætta
símenntun og ráðgjöf í þeim tilgangi að auka lífsgæði og almenna lífsleikni. Fjölmennt tryggir þeim einstaklingum, sem ekki
eiga kosgt á sambærilegri þjónustu á öðrum vettvangi forgang að þjónustu. Fjölmennt leitast við að veita þjónustu
á landsvísu eftir því sem fjárveitingar leyfa.
Ekron
Grensásvegi 16a 108 Reykjavík sími 567-1212 Heimasíða http://www.ekron.is/
EKRON er sértæk einstaklingsmiðuð atvinnutengd starfsþjálfun og endurhæfing fyrir einstaklinga með skerta vinnufærni sökum afleiðinga af áfengis- og vímuefnasýki. Starfsþjálfunin og endurhæfingin er þátttakendum að kostnaðarlausu. Í upphafi þátttöku er lögð áhersla á að aðstoða þátttakendur við að vinna úr lögreglu- og dómsmálum, koma reglu á og fá yfirsýn yfir skuldastöðu og efla tengls við fjölskyldu. Unnið er með sjálfsstyrkingu, fortíð, bakfallsvarnir og öðrum persónulegum vandamálum í a.m.k. vikulegum einkaviðtölum hjá ráðgjafa. Á námskeiðum er unnið með gerð ferilskrár, vinnumöppu, sjálfsstyrkingu, fjármál, samskiptafærni, heimilisfræði, tréútskurð o.fl. Markmiðið er að aðstoða fólk við að byggja sig upp fyrir framtíðina þannig að það geti tekið virkan þátt í þjóðfélaginu á ný.
Höndin
Ljósheimar 8a 104 Reykjavík Sími 567 6034, 695 9104 Veffang: http://www.hondin.is/
Höndin er alhliða mannúðar- og mannræktarsamtök. Við leitumst við að vera vettvangur fólks til sjálfstyrkingar og samhjálpar.Við aðstoðum og liðsinnum, styðjum þá sem til okkar leita. Við hjálpum fólki sem er að feta sín fyrstu skref til nýs lífs eftir ýmis áföll og erum farvegur fólks í átt til þátttöku í samfélaginu, bæði hvað varðar félagslega færni og atvinnuþátttöku. Kjörorð okkar er: Leið til sjálfshjálpar, allir með.
Starfsendurhæfing Hafnafjarðar
Menntasetrinu við Lækinn / Pósthólf 89, 222 Hafnarfjörður. Sími 585-5867.
Tölvupóstur:starfshafn@gmail.com Heimasíða:www.stendur.is
Starfsendurhæfing Hafnarfjarðar er sjálfseignarfélag sem hóf starfsemi í september 2008. Stofnendur voru Hafnarfjarðarbær, Sjúkraþjálfarinn ehf, Starfsmannafélag Hafnarfjarðar og Verkalýðsfélagið Hlíf. Þar er boðið upp á atvinnulega endurhæfingu .
Markmið endurhæfingarinnar eru að þátttakendur komist í vinnu eða nám til þess að styrkja stöðu sína gagnvart vinnumarkaði og að lífsgæði þátttakenda og fjölskyldu þeirra aukist. Þátttaka hentar þeim sem standa höllum fæti á vinnumarkaði, hafa misst vinnu eða þurft að hætta störfum t.d. vegna sjúkdóma, slysa eða erfiðra félagslegra aðstæðna og vilja komast til vinnu á ný.
Áhersla er lögð á virkni þátttakenda og ábyrgð þeirra sjálfra á eigin velferð og unnið er að heildstæðri úrlausn mála með hverjum þátttakanda eftir því sem kostur er. Þeir fá aðstoð og stuðning í endurhæfingunni til þess að taka frumkvæði, vinna að markmiðum sínum og bæta stöðu sína gagnvart vinnumarkaði. Þeir vinna þar að því að efla sjálfa sig til líkama og sálar í samvinnu við aðra þátttakendur og með aðstoð fagfólks, auka þekkingu sína og bæta við sig námi. Meðal þeirra sem koma að starfinu má nefna iðjuþjálfa, náms- og starfsráðgjafa, sálfræðing, sjúkraþjálfara, menntastofnanir, kennara og námskeiðshaldara.
.jpg)





















Stærra letur
Minna letur
