Flýtilyklar
Starfsendurhæfingarúrræði
Starfsendurhæfing Norðurlands
Þórsstíg 4 600 Akureyri
Hlutverk Starfsendurhæfingar Norðurlands er að veita starfsendurhæfingu þeim einstaklingum sem vegna veikinda, slysa og félagslegra erfiðleika eru að vinna að endurkomu út á vinnumarkaðinn. Markmið Starfsendurhæfingar Norðurlands eru að endurhæfa þátttakendur út í vinnu eða nám, að auka lífsgæði þátttakanda, að auka lífsgæði fjölskyldu hans, að endurhæfing fari fram í heimabyggð. Viðskiptavinir fyrirtækisins eru einstaklingar sem eru á örorku / endurhæfingarlífeyri hjá Tryggingastofnun og lífeyrissjóðum, fólk sem er á bótum hjá Svæðisvinnumiðlun eða sveitarfélagi. Unnið er með alla þá þætti sem hver og einn þátttakandi metur í samráði við ráðgjafa SN að hann þurfi á að halda til að hann komast aftur út á vinnumarkaðinn. Hugmyndarfræðin gengur út á að þátttakandinn kemur með virkum hætti að sinni endurhæfingu strax í upphafi og byrjar þ.a.l. strax að axla ábyrgð á sinni endurhæfingu. Hlutverk SN er að útvega þá þjónustu sem hann þarf. Um er að ræða námstengda endurhæfingu en þátttakendur stunda nám á framhaldsskólastigi ýmist frá VMA eða Framhaldsskólanum á Húsavík. Auk þess er boðið upp á fjármálaráðgjöf, sálfræðistuðning, hópefli / sjálfsstyrkingu og líkamsþjálfun. Öll endurhæfingin miðar að því að einstaklingurinn fari í vinnu eða í nám að endurhæfingu lokinni. Árangur þessarar vinnu til dagsins í dag hefur verið góður. Að þjónustu SN koma sérfræðingar þeirra stofnana sem að henni standa s.s. læknar, félagsráðgjafar, ráðgjafar svæðisvinnumiðlunar og lífeyrissjóða. Þjónusta Starfsendurhæfingar Norðurland nýtist þeim einstaklingum sem vilja á markvissan hátt vinna að því að breyta stöðu sinni og stefna út á vinnumarkaðinn á ný.
Starfsendurhæfing Skagafjarðar
Faxatorg 1 550 Sauðárkróki. Sím 455 6160
Sveitarfélagið Skagafjörður, Heilbrigðisstofnunin á Sauðárkróki og Aldan stéttarfélag hafa sameinast um að stofna félag um starfsendurhæfingu í Skagafirði. Tilgangur félagsins er að endurhæfa einstaklinga til þátttöku á vinnumarkaði eða í námi, auka lífsgæði þátttakenda og fjölskylda þeirra og það að starfsendurhæfing fari fram í heimabyggð. Í samþykkt félagsins segir að markmið þess séu meðal annars að endurhæfa einstaklinga til þátttöku á vinnumarkaði og að endurhæfingin fari fram í þeirra heimabyggð. Við undirbúning verkefnisins var horft til reynslu Starfsendurhæfingar Norðurlands, þar sem lögð hefur verið áhersla á að skilgreina heildstæða einstaklingsmiðaða úrlausn fyrir hvern þátttakanda. Stefnt er á að starfsemin fari af stað næsta haust.
Plastiðjan Bjarg-Iðjulundur
Furuvellir 1, 600 Akureyri Sími 461 4606 Heimasíða plastidjan.hlutverk.is
Starfsendurhæfing eða atvinnuleg endurhæfing er fyrir þá sem þurfa að endurhæfa sig til starfa að nýju. Einnig að fá mat og greiningu á vinnugetu og starfshæfni. Ástæður þessa geta verið af ýmsum toga, s.s. sjúkdómar, slys eða langtíma atvinnuleysi. Aðalmarkmið með starfsendurhæfingu er að verða fær til vinnu á almennum vinnumarkaði eða stunda nám. Algengt er að starfsendurhæfing sé jafnhliða eða taki við af læknisfræðilegri endurhæfingu eða meðferð á sjúkrastofnun. Á vinnustað er lögð áhersla á rétt vinnubrögð, góðar starfsvenjur, mætingar, aukið starfsþrek og félagsleg samskipti. Starfsmenn vinna ýmis verk í léttum iðnaðarstörfum. Einnig geta þeir fengið þjálfun við skrifstofustörf, í verslun, í eldhúsi og við ræstingar í vinnustaðnum sjálfum. Samningar eru gerðir til 6 mánaða í senn. Samstarf er við Fjölmennt á Akureyri og hægt að sækja nánskeið í tengslum við starfsendurhæfingu. Í starfsendurhæfingu eru 12 stöðugildi, vinnutími er að hámarki 4 klukkustundir á dag. Hægt er að vinna styttri tíma, þó ekki minna en 4 klukkustundir á viku. Mikil samvinna er við starfsfólk ams á Akureyri (Atvinnu með stuðningi). Dagleg vinna er undir umsjón verkstjóra, starfsleiðbeinenda og iðjuþjálfa. Hver einstaklingur setur sér vinnutengd markmið með aðstoð iðjuþjáfa.
Starfsendurhæfing Austurlands
Tjarnarbraut 39 700 Egilsstaðir Erla Sími 864 4954
Starfsendurhæfing Austurlands var formlega stofnuð 14. Nóvember 2007 og eru stofnaðilar eftirfarandi: . AFL – starfsgreinafélag, Framhaldsskólinn
í Austur Skaftafellssýslu, Heilbrigðisstofnun Austurlands, Heilbrigðisstofnun Suðausturlands, Menntaskólinn á Egilsstöðum, Samtök
sveitarfélaga á Austurlandi, Verkmenntaskóli Austurlands, Verslunarmannafélag Austurlands, Vinnumálastofnun Austurlands, Þekkingarnet Austurlands,
Þróunarfélag Austurlands, Stapi - lífeyrissjóður, og sveitarfélögin Djúpavogshreppur, Fjarðabyggð, Fljótdalshérað,
Hornafjörður, Seyðisfjarðarkaupstaður, og Vopnafjarðarhreppur.
Eitt af meginmarkmiðum Starfsendurhæfingarinnar er að veita þátttakendum endurhæfingu í heimabyggð eða sem næst henni. Þess vegna er
mikilvægt að nýta öll þau úrræði sem finnast í hverju samfélagi og aðlaga þau að þörfum StarfA. Fyrsti
hópurinn hóf endurhæfingu sína í lok febrúar 2008 og var skipulögð til loka maí. Vegna óska þátttakenda var
dagsskrá skipulögð að hluta til í júní og ljóst er að það er þörf fyrir samfellda dagsskrá yfir allt árið.
Prógrammið er þannig uppbyggt: Líkamsþjálfun 2x2 klst. /viku, undir leiðsögn sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfa
Berglindar Erlu Halldórsdóttur. Hún útbjó áætlun fyrir hvern og einn og hélt utan um mætingar. Aðstaða í
tækjasal íþróttahússins á Fljótdalshéraði og leikfimisal var nýtt og greitt fyrir samkv. samningi við
sveitarfélagið. Tölvunámskeið 2 klst./viku á vegum ÞNA. Kennari var Katrín Magnúsdóttir hjá ÞNA,
húsnæði og aðstaða leigð af ÞNA og farið í grunnatriði við tölvunotkun. Hópefli 2 klst/viku einnig á vegum ÞNA,
þ.e. kennari, aðstaða og húsnæði. Emil Björnsson náms og starfsráðgjafi sá um kennsluna. Heilsutengd fræðsla 2 klst./viku
á vegum íþróttafræðings og sjúkraþjálfa, sjálfstætt starfandi, tók á efni eins og mataræði, hreyfing,
heilsumæling, líkamsbeiting, að lifa með verk, lífstílssjúkdómar, minnistruflanir og fl.Önnur fræðsla s.:
Kynning á réttindum hjá Afli-starfsgreinafélagi – starfsmaður Afls.
Framkoma og tjáning – stutt kynning
Afrískar Trommur – stutt kynning
Guðjón Bergmann 1dags námskeið Þú ert það sem þú hugsar.
Lesblindugreining
Stíll – kynning
Nú á annarri önn endurhæfingarinnar er fullt prógram orðið frá 10-15 alla virka daga, en metið er í hverju tilfelli hvað hver og
einn hefur þörf og getu til að taka þátt í. Samstarf var hafið við Verkmenntaskóla Austurlands og Menntaskóla Egilsstaða og
bjóða báðir skólarnir uppá kennslu sem skilar nemendum einingum á framhaldsskólastigi. Kennt er í húsnæði ÞNA annars
vegar á Reyðarfirði og hins vegar á Egilsstöðum.Kenndir eru áfangar s.s. ísl. 103, siðfr. 103 og lífsleikni 103. Auk þessa eru
þátttakendur í líkamsrækt 2x í viku,undir leiðsögn annarsvegar íþróttafræðings og hins vegar
sjúkraþjálfa og starfa báðir sem verktakar. Hópefli 1xí viku undir leiðsögn iðjuþjálfa sem eru annars vegar starfandi fyrir
sveitarfélagið Fjarðabyggð og hins vegar starfandi fyrir Heilbrigðisstofnun Austurlands. Listmeðferð hófst í september á báðum
stöðum og er 2 klst./viku. Elísabet Lorange listmeðferðarfræðingur er með hópmeðferð og hefur til aðstoðar sitt hvorn leiðbeinandann,
sem sér um hópinn aðra hvora viku. Vinnustofa er 2 klst./viku á hvorum stað. Á Egilsstöðum er nýtt aðstaða í Kompunni,
geðræktarmiðstöð (þar fer listmeðferðin einnig fram) og á Reyðarfirði var gerður samningur við kaffihúsarekandann Marleen um að
leigja aðstöðu og þar sem hún er einnig handverkskona sér hún um verklega virkni eða sköpun í vinnustofunni. Auk þessa prógrams er
stefnt að viðtölum við ráðgjafa StarfA 1x í mánuði, viðtöl við Sálfræðing eftir þörf, markþjálfun
eftir þörf, félagsráðgjöf eftir þörf og iðjuþjálfun. Fjármálanámskeiðið Leiðin til velgengni á
vegum Garðars Björgvinssonar hefur verið sett 1x fyrir hvern hóp, en það er námskeið sem tekur 3 klst. í 5 skipti og því fylgir
fjármálaráðgjöf til einstaklinga eftir þörf.
.jpg)





















Stærra letur
Minna letur
