Virk Starfsendurhæfingarsjóður

Starfsendurhæfingarsjóður leggur áherslu á að eiga gott samstarf við atvinnurekendur og alla þá sem koma að velferð starfsmanna. Gott samstarf miðar m.a.

Þjónusta og ráðgjöf


Starfsendurhæfingarsjóður leggur áherslu á að eiga gott samstarf við atvinnurekendur og alla þá sem koma að velferð starfsmanna. Gott samstarf miðar m.a. að því að auka starfshæfni starfsmanna á vinnumarkaði og styrkja á þann hátt þáttöku í atvinnulífinu og samfélaginu.

  • Atvinnurekendur geta leitað til Starfsendurhæfingarsjóðs eftir upplýsingum og ráðgjöf vegna starfsmanna sem eru í skammtíma eða langtíma veikindarfjarveru eða með skerta vinnugetu.

  • Sérfræðingar Starfsendurhæfingarsjóðs koma gjarnan í fyrirtæki til að upplýsa um starfsemi sjóðsins og miðla fræðslu um mikilvægi virkni á vinnumarkaði. Slíkar kynningar er hægt að fá bæði fyrir stjórnendur og starfsmenn þeim að kostnaðarlausu.

  • Hægt er að hafa beint samband við sérfræðinga Starfsendurhæfingarsjóðs í síma 535-5700, senda fyrirspurn á netfangið virk@virk.is eða hafa samband við ráðgjafa í starfsendurhæfingu hjá sjúkrasjóði stéttarfélaganna. Upplýsingar um ráðgjafa hjá mismunandi stéttarfélögum má finna hér.


Ef þú smellir á eftirfarandi linka þá finnur þú ýmsan fróðleik fyrir atvinnurekendur og stjórnendur s.s. um fjarvistastjórnun, starfsendurhæfingu og endurkomu til vinnu:

Ýmis fróðleikur fyrir atvinnurekendur

Upplýsingar um framtíðarsýn og stefnu VIRK vegna samstarfs við atvinnulífið


Ráðgjafar í starfsendurhæfingu hjá sjúkrasjóðum stéttarfélaga

VIRK skipuleggur, fjármagnar og hefur umsjón með störfum ráðgjafa í starfsendurhæfingu hjá sjúkrasjóðum stéttarfélaga um allt land. 

  • Hlutverk ráðgjafanna er að aðstoða einstaklinga við að viðhalda og efla virkni til vinnu.  Eitt af verkefnum ráðgjafa er meðal annars að aðstoða starfsmenn og stjórnendur á vinnustöðum við að tryggja farsæla endurkomu til vinnu í kjölfar veikinda eða slyss.  Hér er að finna upplýsingar um nöfn, staðsetningu, símanúmer og póstföng allra ráðgjafanna. 

  • Ráðgjafi í starfsendurhæfingu metur starfshæfni starfsmannsins, bæði út frá heilsufarslegum og félagslegum þáttum.

  • Ef starfsmaðurinn er lengi frá vinnu vegna veikinda aðstoðar ráðgjafinn hann við að vera í reglubundnu sambandi við vinnustaðinn. Hann styður einnig starfsmenn í gerð áætlunar um að snúa aftur til starfa, í samráði við atvinnurekanda.

  • Hann aðstoðar við gerð áætlunar um aukna virkni, heilsueflingu og starfsendurhæfingu. Ráðgjafinn fylgir þeirri áætlun eftir, í samráði við starfsmannin.

  • Ráðgjafinn veit hvernig starfsmaðurinn, atvinnurekandinn og ýmsir fagaðilar geta unnið saman að því að auka starfshæfni starfsmannsins.


Úr veikindum í vinnu
Vinnum saman

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf