Flýtilyklar
Veikindafjarvistir
- Það er mikilvægt að einstaklingar sem búa við heilsubrest af einhverjum toga fái strax viðeigandi aðstoð og að reynt sé eftir fremsta
megni að standa vörð um ráðningarsamband þeirra og tengsl við vinnumarkaðinn.
- Algengar ástæður veikindafjarvista eru andleg vanlíðan s.s. streita, kvíði og þunglyndi eða stoðkerfisvandamál s.s.bakverkir eða
liðverkir. Einnig eru hjarta- og öndunarfærasjúkdómar, slys og óhöpp algengar ástæður fyrir fjarvistum frá vinnu.
- Veikindafjarvistir starfsmanna eru því af ýmsum ástæðum; líkamlegum, andlegum eða félagslegum. Þó að oftast sé
um að ræða eina grunnorsök, er algengt að fleiri en ein ástæða sé fyrir fjarvistum. Þessi heilsuvandamál eru algeng hjá fólki
og geta gert lífið erfitt og flókið en þau eru yfirleitt ekki það alvarleg að viðkomandi verði ófær til vinnu
- Flestar rannsóknir benda sterklega til þess að því lengur sem fólk er frá vinnu – því ólíklegra er að það komi nokkurn tíma aftur til vinnu.
Fjarvistastjórnun
Markmið með fjarvistastjórnun er fyrst og fremst að fækka fjarvistum á vinnustað og stytta fjarvistatímann, auk þess að leiðbeina og móta viðhorf stjórnenda og starfsmanna til veikindafjarvista og að vinnustaðurinn er mikilvægur fyrir í líðan og velferð einstaklinga.
.jpg)





















Stærra letur
Minna letur
